Verslun
Leit
SÍA

15. október 2008

Sætur sigur á Makedóníu

Ísland lagði Makedóníu í kvöld í undankeppni HM 2010.  Leikið var á Laugardalsvelli og Veigar Páll Gunnarsson skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu leiksins.  Íslendingar fór með þessu upp í þriðja sæti riðilsins með jafnmörg stig og Skotar sem eru í öðru sæti.

Landslið

15. október 2008

Leikskráin fyrir leikinn gegn Makedóníu

Fyrir viðureign Íslands og Makedóníu í undankeppni HM 2010 í dag verður gefin út leikskrá með ýmsum áhugaverðum og gagnlegum upplýsingum.  Leikskráin verður seld við innganginn á Laugardalsvelli fyrir leik og kostar aðeins kr. 500.

Landslið

14. október 2008

Námskeið Alþjóðahússins framundan

Alþjóðahús fer í næstu dögum af stað með námskeið sem ætlað er að stuðla að aukinni þátttöku barna og unglinga af erlendum uppruna í knattspyrnu. Námskeiðið er sniðið sérstaklega að þjálfurum og starfsfólki íþróttafélaga. Aðgangur er ókeypis.

Fræðsla

14. október 2008

Síðasti dagur forsölu á Ísland - Makedóníu

Í dag er síðasti dagur forsölu á leik Íslands og Makedóníu sem fram fer á morgun, miðvikudaginn 15. október.  Leikið er á Laugardalsvelli kl. 18:00 en leikurinn er liður í undankeppni HM 2010.  Miðasala fer fram á netinu en miðaverð hækkar um 500 krónur á leikdag.

Landslið

14. október 2008

HK auglýsir eftir aðstoðarþjálfara fyrir 4. flokk karla

Knattspyrnudeild HK auglýsir eftir aðstoðarþjálfara fyrir 4. flokk karla.  HK leitar að einstaklingi með reynslu af þjálfun sem er tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að efla starf knattspyrnu­deildarinnar.

Fræðsla

13. október 2008

Tap gegn Austurríki hjá U19 karla

Strákarnir í U19 karla lágu fyrir Austurríkismönnum í öðrum leik liðsins í undankeppni EM en leikið er í Makedóníu.  Austurríkismenn sigruðu með þremur mörkum gegn engu eftir að hafa haft tveggja marka forystu í hálfleik.

Landslið

13. október 2008

U19 karla leikur gegn Austurríki í dag

Strákarnir í U19 leika sinn annan leik í undankeppni EM í dag þegar þeir mæta Austurríkismönnum kl. 12:00.  Riðillinn er leikinn í Makedóníu. Kristinn R. Jónsson hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag.

Landslið

12. október 2008

Jafntefli gegn Aserum hjá U17 kvenna

Stelpurnar í U17 kvenna léku lokaleik sinn í dag í undankeppni EM hjá U17 kvenna en leikið var á Ítalíu.  Mótherjarnir voru frá Aserbaídsjan og urðu úrslitin markalaust jafntefli.  Frakkar urðu efstir í riðlinum.

Landslið

11. október 2008

Írar tilkynna hópinn fyrir leikina gegn Íslendingum

Noel King, landsliðsþjálfari írska kvennalandsliðsins, hefur valið 21 leikmann í hóp sinn er mætir Íslendingum í tveimur umspilsleikjum, 26. október og 30. október.  Fyrri leikurinn verður í Dublin en sá síðari á Laugardalsvelli.

Landslið

11. október 2008

Byrjunarlið Íslands tilbúið

Í dag kl. 18:45 hefst leikur Hollands og Íslands í undankeppni HM 2010 og er leikið á De Kuip vellinum í Rotterdam.  Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl. 18:15. Ólafur Jóhannesson hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

11. október 2008

Strákarnir í U19 hefja leik í dag

Undankeppni EM U19 karla hefst í dag hjá Íslendingum og er leikið í Makedóníu.  Mótherjar dagsins eru Svíar og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Á mánudaginn verður leikið gegn Austurríki.

Landslið

11. október 2008

Tveggja marka tap í Rotterdam

Hollendingar sigruðu Íslendinga með tveimur mörkum gegn engu í undankeppni HM 2010 í kvöld en leikið var í Rotterdam.  Heimamenn skoruðu mark í hvorum hálfleik og fóru með sanngjarnan sigur af hólmi.

Landslið

11. október 2008

Jafntefli í hörkuleik gegn Svíum hjá U19 karla

Strákarnir í U19 hófu leik í dag í undankeppni EM en leikið er í Makedóníu.  Fyrsti leikurinn var við Svía og lauk honum með jafntefli, 3-3, eftir mikinn hörkuleik.  Svíar leiddu í hálfleik, 2-1.

Landslið

10. október 2008

Landsliðið æfir á keppnisvellinum í kvöld

Karlalandsliðið undirbýr sig nú af kappi undir landsleikinn gegn Hollandi sem fer fram á morgun, laugardag.  Aðstæður eru allar hinar bestu, æfingar hafa gengið vel og hópurinn í góðu standi.  Í kvöld verður svo æft á keppnisvellinum, De Kuip, heimavelli Feyenoord.

Landslið

10. október 2008

Miðaverð lækkað á Ísland - Makedónía

Knattspyrnusamband Íslands ákvað í dag að lækka umtalsvert miðaverð á landsleik Íslands og Makedóníu sem fram fer á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag kl. 18:00.  Leikurinn er síðasti leikur Íslands á þessu ári í undankeppni HM.

Landslið

10. október 2008

Miðar á Ísland - Makedónía fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Makedónía afhenta þriðjudaginn 14. október frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis. 

Landslið

9. október 2008

Eins marks tap á Ítalíu

Íslenska U17 kvennalandsliðið tapaði í dag gegn Ítölum í undankeppni EM en riðill Íslands er leikinn á Ítalíu.  Lokatölur urðu 1-0 fyrir heimastúlkur eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.

Landslið

9. október 2008

Stelpurnar í U17 mæta Ítölum í dag

Stelpurnar í U17 kvenna leika sinn annan leik sinn í dag í undankeppni EM en riðillinn er leikinn á Ítalíu.  Mótherjar Íslendinga í dag eru einmitt Ítalir og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið