A landslið karla í 23. sæti á FIFA listanum
A landslið karla er í sinni hæstu stöðu á styrkleikalista FIFA frá því mælingar hófust. Á nýútgefnum lista er Ísland í 23. sæti af öllum aðildarþjóðum FIFA og ef einungis Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er Ísland númer 16 í röðinni og jafnframt efst Norðurlandaþjóða. Íslenska liðið tók svo sannarlega stökk frá síðasta lista, fer upp um heil 14 sæti.