Hagnýtar upplýsingar fyrir fjölmiðla

Hér að neðan er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir fjölmiðla, reglur og tengsl við reglugerðir.
Aðgönguskírteini fjölmiðla vegna leikja í deild og bikar
Handhafi F-aðgönguskírteinis (fjölmiðlar) útgefnu af KSÍ hefur ókeypis aðgang að öllum leikjum í knattspyrnumótum innanlands fyrir sig einan, enda sé viðkomandi að starfa við leikinn. Sótt er um F-aðgönguskírteini í gegnum vefsíðuna www.accredito.com/ksi. Nánari fyrirspurnir sendist á media@ksi.is.
KSÍ er í samstarfi við Samtök Íþróttafréttamanna (SÍ) vegna aðgönguskírteina fyrir fulltrúa fjölmiðla. Útgáfa skírteinanna er í höndum KSÍ, sem tekur á móti umsóknum fjölmiðla um skírteini og Samtök íþróttafréttamanna veita umsóknum síðan faglega umsögn áður en KSÍ tekur ákvörðun um útgáfuna. Ekki er nauðsynlegt að vera fullgildur meðlimur í SÍ til að sækja um fjölmiðlaskírteini, enda koma mun fleiri að umfjöllun fjölmiðla um leiki en þeir sem eru íþróttafréttamenn í fullu starfi.
Aðgengi að landsleikjum á Laugardalsvelli
Fjölmiðlum er boðið að sækja um aðgöngumiða að hverjum landsleik fyrir sig í gegnum vefsíðuna www.accredito.com/ksi. Nánari fyrirspurnir um aðgengi og aðstöðu fjölmiðla sendist á media@ksi.is. Á leikjum A landsliðs karla í undankeppni EM og undankeppni HM gilda sérreglur vegna umsókna fyrir allt starfsfólk sjónvarps og fara þær umsóknir í gegnum UEFA.
Athugið vinsamlegast að ekki er víst að hægt verði að uppfylla allar óskir um fjölda aðgöngumiða á alla leiki og að þessir miðar eru eingöngu fyrir þá sem koma til með að starfa við leikinn.
Aðrar upplýsingar fyrir fjölmiðla vegna leikja á Laugardalsvelli
Ljósmyndarar
Ljósmyndarar fá afhent vesti í S-inngangi og þurfa að innrita sig á þar til gert eyðublað. Vestinu er skilað í vinnuaðstöðu ljósmyndara eftir að leik lýkur. Ljósmyndarar hafa aðgang að vallarsvæði og skulu klæðast vestum þar.
Fyrir leik geta ljósmyndarar tekið myndir af byrjunarliðum frá hlaupabraut. Þegar leikur hefst skulu ljósmyndarar eingöngu vera fyrir aftan auglýsingaskilti við endalínur (sitjandi). Að leik loknum geta ljósmyndarar athafnað sig á afmörkuðu svæði á hlaupabraut til að ná myndum af leikmönnum á leið af leikvelli, en þó ekki fyrr en dómari hefur flautað til leiksloka. Ljósmyndarar ættu einungis að skipta um vallarhelming í hálfleik. Leið leikmanna og þjálfara liðanna af leikvelli má ekki hindra.
Veitingar
Fjölmiðlamönnum verða færðar veitingar í viðeigandi aðstöðu.
Grasflötin
Vinsamlegast athugið að stranglega er bannað að fara inn á grasflöt, á öllum tímum. Eina undantekningin er myndavél sjónvarpsrétthafa fyrir leik (þjóðsöngvar og val fyrirliða á leikhelmingi) og eftir leik (leikmenn á leið út af velli).
Fjölmiðlafulltrúar í efstu deild karla
Í leyfisreglugerð kemur fram sú krafa til félaga í efstu deild karla að þau skipi fjölmiðlafulltrúa til að sinna verkefnum tengdum fjölmiðlum á leikjum deildarinnar.
Aðstaða fjölmiðla og þjónusta við fulltrúa fjölmiðla
Í Handbók leikja eru listaðar þær kröfur sem gerðar eru til félaga vegna aðstöðu fjölmiðla á leikjum og vegna þjónustu við fulltrúa fjölmiðla á þeim leikjum.