• fös. 03. feb. 2023
  • Mótamál

Drög að niðurröðun leikja í 2. og 3. flokki karla og 3. flokki kvenna

KSÍ hefur birt drög að niðurröðun leikja Íslandsmótsins í keppni A-liða í 2. flokki karla, 3. flokki karla og 3. flokki kvenna.

Keppni hefst í byrjun mars í 2. flokki karla, 3. flokki karla og 3. flokki kvenna. 

Félög eru vinsamlegast beðin um að fara vandlega yfir þessi drög og koma með athugasemdir í síðasta lagi föstudaginn 10. febrúar á netfangið birkir@ksi.is.

Skoða þarf sérstaklega tímasetningar leikja m.t.t. vallarmála og ferðlaga milli landshluta. Einnig er ljóst að sumir leikvellir verða ekki tilbúnir þegar 1. lota fer fram. Hlutaðeigandi heimalið þurfa að leysa þau mál sérstaklega.

Vinsamlegast farið yfir hvort rétt heiti liða séu skráð.

Mótin á vef KSÍ

2. flokkur
3. flokkur

Drög að niðurröðun leikja í öðrum mótum yngri flokka verða birt 1. mars.