• fös. 09. feb. 2024
  • Landslið
  • A kvenna

Miðasala á Ísland - Serbía hefst 19. febrúar

Miðasala á síðari umspilsleik A landsliðs kvenna gegn Serbíu hefst mánudaginn 19. febrúar klukkan 12:00.

Miðaverð er 2.500 krónur fyrir fullorðna og 750 krónur fyrir 16 ára og yngri.

Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli þann 27. febrúar klukkan 14:30. Liðin mætast í Serbíu þann 23. febrúar.