KSÍ III þjálfaranámskeið 18.-20. nóvember 2016
KSÍ III þjálfaranámskeið 18.-20. nóvember 2016
Knattspyrnusamband Íslands mun halda 3. stigs þjálfaranámskeið helgina 18.-20. nóvember. Námskeiðið er opið öllum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.
Námskeiðið samanstendur af þessu helgarnámskeiði auk 20 tíma í þjálfun hjá félagi. Upplýsingar um það verkefni fá finna í viðhengi.
Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður auglýst síðar. Námskeiðsgjald er 25.500 kr.
Opið er fyrir skráningu á námskeiðið en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og eins með því að hringja í síma 510-2977. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja skráningunni: Nafn, kennitala, tölvupóstfang, símanúmer og félag.