• þri. 12. des. 2000
  • Landslið

Valur Fannar til Indlands

Sigurður Örn Jónsson, KR-ingur, hefur dregið sig út úr landsliðshópnum sem fer til Indlands til að taka þátt í Super Soccer Millennium Cup. Í stað Sigurðar Arnar hefur Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari valið leikmann Fram, Val Fannar Gíslason. Valur Fannar hefur leikið einn A-landsleik, kom inn á sem varamaður gegn Möltu í 5-0 sigri Íslands á Laugardalsvellinum í júlí á þessu ári.

Hópur Íslands