• fim. 14. des. 2000
  • Landslið

Sævar Þór í stað Einars Þórs

Einar Þór Daníelsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum sem fer til Indlands til að taka þátt í Super Soccer Millennium Cup. Í stað Einars Þórs hefur Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari valið leikmann Fylkis, Sævar Þór Gíslason. Sævar Þór hefur ekki leikið landsleik áður og er því fjórði nýliðinn í hópnum. Áður hafði Sigurður Örn Jónsson dregið sig úr hópnum og var Valur Fannar Gíslason valinn í hans stað.

Hópur Íslands