• þri. 20. mar. 2001
  • Landslið

Tvær breytingar á U21 hópnum

Sigurður Grétarsson, þjálfari U21 landsliðs karla, hefur orðið að gera tvær breytingar á leikmannahópi sínum sem mætir liði Búlgara í undankeppni EM, en sá leikur fer fram deginum á undan leik A liðsins. Bjarni Guðjónsson, Stoke, og Hjörvar Hafliðason, markvörður úr Val, hafa neyðst til að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Í þeirra stað koma markvörðurinn Stefán Logi Magnússon, sem leikur með Farum í Danmörku, og Ray Anthony Jónsson, leikmaður Grindavíkur, en hvorugur þeirra hefur leikið U21 leik áður.

Hópur Íslands - U21 lið