• mið. 04. sep. 2002
  • Landslið

Íslenskir dómarar á faraldsfæti

Íslensk dómaratríó munu sjá um dómgæslu á tveimur U21 landsleikjum karla á Bretlandi föstudaginn 6. september næstkomandi. Egill Már Markússon dæmir leik Skotlands og Norður-Írlands á leikvangi St. Mirren í Paisley. Aðstoðardómarar hans verða Einar Guðmundsson og Sigurður Þór Þórsson. Kristinn Jakobsson mun dæma viðureign Englands og Júgóslavíu á Reebok Stadium í Bolton. Honum til aðstoðar verða þeir Pjetur Sigurðsson og Eyjólfur Finnsson.