• mán. 23. sep. 2002
  • Landslið

U17 karla - Undankeppni EM í Litháen

U17 landslið karla leikur fyrsta leik sinn í undankeppni EM á miðvikudag, en riðill Íslands fer fram í Litháen 24. - 28. september. Önnur lið í riðlinum eru Albanía og Rússland. Leikurinn á miðvikudag er gegn Albaníu og hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma. Íslenska liðið lenti í töfum á ferðalagi sínu vegna rafmagnsbilunar á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Flugið til Vilnius var fellt niður og liðið því skráð í annað flug, og því tafðist ferðalagið um tæpar 6 klukkustundir.

Hópurinn | Dagskrá