• mið. 02. okt. 2002
  • Landslið

U19 karla - Leikið gegn Noregi í dag

U19 landslið karla leikur í dag vináttulandsleik gegn Noregi á Voldslökka-leikvanginum í Osló (nálægt Ullevaal-leikvanginum) og hefst hann kl. 13:00 að íslenskum tíma. Leikurinn er liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM, en riðill Íslands fer fram í Slóveníu í lok október. Guðni Kjartansson, þjálfari, hefur valið byrjunarlið Íslands.

Lið Íslands gegn Noregi

Markvörður: Jóhannes Kristjánsson.

Varnarmenn: Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Guðmundsson, Jökull I. Elísabetarson og Kristján Valdimarsson.

Tengiliðir: Emil Hallfreðsson, Davíð Þór Viðarsson (fyrirliði), Sverrir Garðarsson og Pálmi Rafn Pálmason.

Framherjar: Jóhann Helgason og Rannver Sigurjónsson.

Hópurinn | Dagskrá