• lau. 05. okt. 2002
  • Landslið

Allir leika með liðum utan Litháens

Allir í landsliðshópi Litháens fyrir leikina gegn Færeyingum 12. október og Íslendingum 16. október

leika með félagsliðum utan heimalandsins. Flestir leika með liðum í Rússlandi, eða 8 alls, en aðrir leika í Grikklandi, Skotlandi, Úkraínu, Danmörku, Ísrael, Lettlandi, Portúgal og á Ítalíu. Ekki er víst að Íslendingar kannist við mörg nafnanna, en meðal sterkustu leikmanna Litháa eru markvörðurinn Gintaras Stauce, sem m.a. hefur leikið í Þýskalandi, og framherjinn Edgaras Jankauskas, sem hefur m.a. leikið í Belgíu og á Spáni.

Hópurinn