• fim. 02. jan. 2003
  • Landslið

A landslið kvenna leikur gegn BNA

Ákveðið hefur verið að A landslið kvenna muni leika vináttulandsleik gegn Bandaríkjamönnum 16. febrúar næstkomandi. Leikið verður í Charleston í Suður-Karólínu og verður þetta fimmta viðureign þjóðanna. Landsliðið heldur utan 13. febrúar og kemur heim aftur 17. febrúar.