• fim. 13. feb. 2003
  • Landslið

Tvær tilnefningar til verðlauna

ÍMARK, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa, heldur nú í 17. sinn samkeppni um athyglisverðustu auglýsingar ársins. Tvær auglýsingar sem gerðar voru til að kynna leiki A-landsliðs kvenna í undankeppni HM á síðasta ári eru tilnefndar til verðlauna. "Boltastríð við Breta" fékk tilnefningu í flokknum besta dagblaðaauglýsingin og "Stelpuslagur" fékk tilnefningu í flokknum besta veggspjaldið. Framleiðandi beggja auglýsinganna var Gott fólk McCann-Ericsson.

Nánar