• mið. 22. okt. 2003
  • Landslið

Ísland fellur um 7 sæti á styrkleikalista FIFA

A landslið karla fellur um 7 sæti milli mánaða á styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag, er nú í 55. sæti. Brasilíumenn eru efstir sem fyrr, Frakkar í öðru sæti, Spánverjar í því þriðja og Argentínumenn í fjórða. Mikið var um leiki hjá asískum landsliðum og því er mesta hreyfingin milli mánaða hjá þeim.