• fim. 18. mar. 2004
  • Landslið

Ísland upp um eitt sæti

Ísland er í 58. sæti á styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í gær og hefur hækkað um eitt sæti frá því í síðasta mánuði. Albanir, sem verða mótherjar Íslands í vináttulandsleik í Tirana 31. mars næstkomandi, eru í 88. sæti, eða 30 sætum neðar en Íslendingar. Ef einungis Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er Ísland í 29. sæti af 52 þjóðum. Litlar breytingar eru ofarlega á listanum að venju, en hástökkvari mánaðarins er Hvíta-Rússland, sem fer upp um 13 sæti.