• mán. 05. sep. 2005
  • Landslið

Búlgarar vilja mörk á móti Íslendingum

Hristo Stoichkov - landsliðsþjálfari Búlgaríu
stoichkov_small

Eftir þriggja mark tap gegn gegn Svíum á laugardag hefur Hristo Stoichkov, þjálfari búlgarska landsliðsins, gert þá kröfu til sinna manna að þeir vinni sigur á Íslendingum á miðvikudag, og það á sannfærandi hátt.

Stoichkov mun væntanlega leggja upp með mikinn sóknarleik strax frá byrjun og krafa er gerð um að skoruð verði nokkur mörk.  Reiknað er með nokkrum breytingum frá leiknum gegn Svíum og mun uppbygging sóknarleiksins hvíla á herðum þeirra Stilians Petrov og Martins Petrov.

Liðin mætast í Sofia á miðvikudag og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma, í beinni útsendingu á Sýn.

U21 landslið þjóðanna mætast í Sofia á þriðjudag kl. 14:00 að íslenskum tíma.