• mið. 14. sep. 2005
  • Landslið

Upp um tvö sæti á FIFA-listanum

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandslið
fifa_listi_karla

Íslenska landsliðið hefur hækkað um tvö sæti á styrkleikalista FIFA frá því í síðasta mánuði og er nú í 92. sæti. 

Brasilíumenn eru enn í efsta sæti, en Hollendingar fara upp fyrir Argentínu í 2. sæti. 

Svíar snúa aftur á topp 10 eftir níu ára fjarveru, á kostnað Englendinga.