• fim. 15. sep. 2005
  • Landslið

Landsliðsmenn heimsóttu langveik börn í Rjóðri

Hermann Hreiðarsson og ungur aðdáandi
rjodur2005_hermannogfan

Landsliðsmennirnir Gylfi Einarsson, Hermann Hreiðarsson og Tryggvi Guðmundsson heimsóttu Rjóður - hjúkrunarheimili fyrir langveik börn - þegar þeir komu til landsins fyrir leikinn gegn Króatíu á dögunum.

Hermann og Gylfi ásamt ungum aðdáendum

Þeir félagar gáfu eiginhandaráritanir og ýmsar aðrar gjafir, brugðu á leik og spjölluðu við krakkana.  Heimsóknin var í samstarfi KSÍ og Coca-Cola og höfðu bæði leikmennirnir og ungir aðdáendur þeirra í Rjóðri mikið gaman af.

Hermann, Tryggvi og Gylfi bregða á leik

Rjóður er til húsa hjá Landspítala Kópavogi og er þar rými fyrir 10 langveik börn í einu í endurhæfingu og aðhlynningu, en alls eru um 30-40 börn hér á landi talin þurfa á þjónustu af þessu tagi að halda - þó ekki samfellt.  Rekstur heimilisins er í höndum Landspítalans en tengist Barnaspítala Hringsins faglega.