• fös. 16. sep. 2005
  • Landslið

Mikill áhugi á leik Svíþjóðar og Íslands

Heimsmeistarakeppnin 2006
hm_2006_logo

Mikill áhugi er í Svíþjóð á leiknum í undankeppni HM 2006 gegn Íslandi, en hann fer fram á Råsunda leikvanginum í Stokkhólmi miðvikudaginn 12. október næstkomandi.

Nú þegar hafa 28.100 aðgöngumiðar verið seldir og talið líklegt að uppselt verði á leikinn.

Á síðasta heimaleik Svíþjóðar gegn Búlgaríu komu 33.883 áhorfendur.