• fös. 16. sep. 2005
  • Landslið

U17 landslið karla til Andorra

EM U17 landsliða karla
em_u17_karla

Lúkas Kostic, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur valið 18 manna leikmannahóp fyrir undankeppni EM. Riðill Íslands fer fram í Andorra 23. - 27. september og eru Tékkland og Svíþjóð einnig í riðlinum.

Þrír leikmenn í íslenska hópnum eru á mála hjá erlendum liðum - markvörðurinn Haraldur Björnsson hjá Hearts í Skotlandi, Björn Jónsson hjá hollenska liðinu Heerenveen og Björn Orri Hermannsson hjá Ipswich á Englandi.

Af íslenskum liðum á Breiðablik flesta fulltrúa í hópnum, eða þrjá.

Liðið heldur utan 21. september og kemur heim aftur 28. september.

Hópurinn