• fös. 16. sep. 2005
  • Landslið

Upp um eitt sæti á styrkleikalistanum

Styrkleikalisti FIFA - Kvennalandslið
FifaWWRLogo

Ísland hefur hækkað um eitt sæti á styrkleikalista FIFA fyrir kvennalandslið og er nú í 17. sæti. Engin breyting er á efstu sætunum, Þjóðverjar eru áfram efstir, Bandaríkjamenn í öðru sæti og Norðmenn í því þriðja.

Ef einungis Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er íslenska liðið í 10. sæti.

Styrkleikalisti FIFA fyrir kvennalandslið er gefinn út þrisvar sinnum á ári og verður næsti listi gefinn út 21. desember.