• fim. 22. sep. 2005
  • Landslið

Miðar til sölu á lokaleikinn í undankeppni HM 2006

Áfram Ísland!
aframisland

KSÍ hefur til sölu miða fyrir Íslendinga, bæði þá sem búa hér á landi og þá sem búa erlendis, á viðureign Íslands og Svíþjóðar í undankeppni HM karlalandsliða 2006, sem fram fer í Svíþjóð 12. október næstkomandi, en um er að ræða lokaleik Íslands í riðlinum. 

Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við Ragnheiði hjá KSÍ, fyrir miðvikudaginn 28. september.

Athugið að miðarnir eru eingöngu ætlaðir Íslendingum og er verð miðanna kr. 2.500.