• fös. 27. jan. 2006
  • Landslið

U21 karla mætir Andorra í forkeppninni

EM U21 landsliða karla
em_u21_karla

Í morgun var dregið í undankeppni EM U21 landsliða karla og mætir Ísland Andorra í forkeppni, þar sem leikið er heima og heiman. 

Liðið sem kemst áfram verður í riðli með Ítalíu og Austurríki, þar sem leikin er einföld umferð og fær hvert lið einn heimaleik og einn útileik.  Ítalir hafa hampað Evrópumeistaratitli U21 landsliða karla í 5 af síðustu 7 keppnum.

Dagsetningar leikjanna tveggja í forkeppninni hafa ekki verið ákveðnar, en leikdagar í riðlakeppninni liggja nokkurn veginn fyrir.