• fös. 03. feb. 2006
  • Landslið

Tæplega 30 leikmenn á úrtaksæfingum U21 karla

U21 landslið karla
U21-2004-0079

Tæplega 30 leikmenn hafa verið boðaðir á úrtaksæfingar fyrir U21 landslið karla, sem fara fram í Reykjaneshöll dagana 11. og 12. febrúar. Æfingarnar fara fram undir stjórn Lúkasar Kostic, þjálfara liðsins.

Öll félög í Landsbankadeildinni 2006 eiga fulltrúa í æfingahópnum, auk þriggja félaga í 1. deild. U21 landslið karla mætir SKotum í vináttuleik ytra 28. febrúar næstkomandi og er það fyrsti leikur liðsins undir stjórn Lúkasar Kostic.

Æfingahópurinn