• fim. 09. mar. 2006
  • Landslið

Þóra verður fyrirliði gegn Englandi

Þóra B. Helgadóttir
Alidkv2004-0341

Markvörðurinn Þóra B. Helgadóttir verður fyrirliði íslenska liðsins í vináttulandsleiknum gegn Englendingum á Carrow Road í Norwich í kvöld, en eins og kunnugt er gat systir hennar, Ásthildur, ekki verið með vegna meiðsla. 

Íslenska liðið hefur lítið getað æft vegna aðstæðna á æfingavöllum, en mikið hefur rignt undanfarna daga og vellirnir verið hálfgert drullusvað.

Byrjunarlið Íslands verður tilkynnt kl. 10:30 og birt hér á vefnum, en leikurinn hefst kl. 19:45 í kvöld.