• mið. 12. apr. 2006
  • Landslið

Fyrsti ósigurinn gegn Hollendingum staðreynd

Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði mark Íslands
Alidkv2004-0447

A landslið kvenna beið í kvöld ósigur gegn Hollendingum í vináttulandsleik, en þetta er í fyrsta sinn sem þeim appelsínugulu tekst að vinna sigur á íslenska liðinu.  Jafnt var í leikhléi, en sigurmark hollenska liðsins kom í síðari hálfleik.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skoraði hvort lið um sig eitt mark.  Hollendingar náðu forystunni á 30. mínútu, en Hólmfríður Magnúsdóttir jafnaði metin á 41. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Dóru Stefánsdóttur.

Íslenska liðið þótti ekki leika vel í síðari hálfleik og höfðu heimamenn á Oosterenk leikvanginum tögl og hagldir.  Sigurmark Hollendinga kom á 58. mínútu leiksins og þrátt fyrir háværan stuðning fjölmargra Leiknismanna, sem eru í æfingaferð í Hollandi, tókst íslenska liðinu ekki að jafna metin, og því er fyrsti sigur Hollands gegn Íslandi í A landsleik kvenna staðreynd.

Byrjunarlið Íslands í leiknum

akvennahollandIMG_0362