• mið. 13. des. 2006
  • Landslið

Riðillinn klár fyrir undankeppni EM 2009

Evrópukeppni kvennalandsliða
women_euro

Í dag var dregið í riðla í undankeppni fyrir EM 2009 en úrslitakeppnin fer fram í Finnlandi.  Ísland var í öðrum styrkleikaflokki og lenti í þriðja riðli með Frakklandi, Serbíu, Slóveníu og Grikklandi.

Sigurvegarar riðlanna, sem eru sex talsins, komast beint í úrslitakeppnina en liðin í öðru sæti komast í umspil ásamt þeim fjórum liðum sem bestan árangur hafa í þriðja sæti.  Finnland kemst svo sjálfkrafa í úrslitakeppnina sem gestgjafar.

Ef litið er á styrkleikalista FIFA kvenna, en síðasti listi var gefinn út 15. september síðastliðinn, ættu möguleikar íslenska liðsins að vera allgóðir.  Frakkar eru í 6. sæti, Serbía í 30. sæti, Grikkir í 56. sæti og Slóvenía í 62. sæti.  Ísland er í 21. sæti listans en nýr listi verður gefinn út 22. desember næstkomandi.

Hægt er að sjá riðlaskiptinguna hér.