• mán. 11. jún. 2007
  • Landslið

Íslenski hópurinn tilkynntur í dag

Evrópukeppni kvennalandsliða
women_euro

Landsliðshópurinn sem mætir Frökkum og Serbum í undankeppni EM kvennalandsliða 2009 verður tilkynntur með blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag, mánudag kl. 14:00.

Leikirnir eru afar mikilvægir fyrir íslenska liðið, sem sett hefur stefnuna á að komast í lokakeppnina í frysta sinn.  Ljóst er að stuðningur áhorfenda í leikjunum tveimur, sem fram fara á Laugardalsvelli, mun skipta gríðarlega miklu máli.