• mið. 13. jún. 2007
  • Landslið

Möguleikar íslenska liðsins

Evrópukeppni kvennalandsliða
women_euro

Áhugavert er að velta fyrir sér möguleikum A-landsliðs kvenna á sæti í lokakeppni EM 2009.  Leikið er 6 riðlum í undankeppninni og í hverjum riðli eru 5 lið.  Ljóst er að efsta liðið í hverjum riðli fer beint í úrslitakeppnina, liðið sem hafnar í 2. sæti fer í umspil um sæti í lokakeppninni, sem og 4 lið með bestan árangur í 3. sæti.  Þetta þýðir að 3 lið af 5 í riðlinum geta komist í úrslitakeppnina.

Í riðli Íslands er ljóst að Frakkar þykja sigurstranglegir og er talið að íslenska liðið eigi góðan möguleika á 2. sæti riðilsins.