• mið. 13. jún. 2007
  • Landslið

Wendy Toms dæmir leikinn

Wendy Toms
wendy-toms-premier2

Dómarinn í viðureign Íslands og Frakklands á laugardag er Englendingurinn Wendy Toms.  Aðstoðardómarar eru samlandar hennar, þær Emma Everson og Natalie Walker, en eftirlitsmaður UEFA er Eija Vahala frá Finnlandi. Varadómarinn er hins vegar íslenskur og heitir Gunnar Sverrir Gunnarsson.

Wendy Toms er íslenska liðinu að góðu kunn, en hún dæmdi einnig vináttulandsleik Íslands og Englands í maí á þessu ári. 

Wendy TomsToms varð á sínum tíma fyrsti kvendómarinn til að starfa í ensku úrvalsdeildinni og starfaði þar sem aðstoðardómari á fjölmörgum leikjum.