• mið. 06. feb. 2008
  • Landslið

U21 karla leikur gegn Kýpur í dag

Byrjunarlið U21 karla gegn Austurríki í Grindavík 2007
JGK_6578

U21 karlalandsliðið leikur við Kýpur í dag en leikurinn er liður í undankeppni EM 2009.  Leikið er á Kýpur og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Ísland er í þriðja sæti riðilsins með sex stig en eini tapleikur Íslands til þessa í keppninni kom í heimaleiknum gegn Kýpur.

Luka Kostic hefur tilkynnt byrjunarliðið en búast má við hörkuleik hjá strákunum sem eru staðráðnir í að selja sig dýrt. 

Byrjunarliðið: (4-5-1)

Markvörður: Haraldur Björnsson

Hægri bakvörður: Hólmar Örn Eyjólfsson

Vinstri bakvörður: Gunnar Kristjánsson

Miðverðir: Guðmann Þórisson og Hallgrímur Jónasson

Tengiliðir: Aron Einar Gunnarsson, Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði og Eggert Gunnþór Jónsson

Hægri kantur: Arnór Smárason

Vinstri kantur: Theodór Elmar Bjarnason

Framherji: Birkir Bjarnason

Með sigri getur Ísland skotist upp í annað sæti riðilsins en þar sitja Slóvakar með átta stig.

Kýpur - Ísland

Leikurinn er hafinn á Kýpur við frábærar aðstæður.  Sól, 17 stiga hiti og völlurinn góður. 

Liðin skiptast á að sækja fyrstu 15 mínúturnar en staðan er ennþá 0-0.  Hinsvegar hafa Íslendingar fengið tvö mjög góð marktækifæri á þessum mínútum.  Á 8. mínútu átti Arnór Smárason gott skot sem hafnaði í stönginni og tveimur mínútum síðar komst Birkir Bjarnason einn í gegn en markvörður Kýpur sá við honum.  Stefnir allt í hörkuleik.

Búið að flauta til hálfleiks og staðan er 0-0 þegar gengið er til búningsherbergja.  Þetta er mikill baráttuleikur en bestu færin komu á fyrstu 15 mínútunum.  Íslenska liðið hefur verið markvissara í sínum sóknaraðgerðum og hafa fengið þrjú þokkaleg færi síðasta hálftímann af fyrri hálfleik.  Leikmenn Kýpur hafa skapað sér lítið, fengið eitt þokkalegt færi en það skot fór beint á Harald í markinu.

Seinni hálfleikur hefur farið illa af stað því eftir 60 mínútur er staðan orðin 2-0 fyrir Kýpur.  Á 56. mínútu fengu heimamenn vítaspyrnu sem þeir skoruðu úr og aðeins tveimur mínútum síðar bættu þeir við marki eftir hornspyrnu.  Mörkin komu eins og köld vatnsgusa framan í leikmenn Íslands en leikurinn hafði verið jafn fram að þessu og Íslendingar líklegri upp við markið.

Leiknum er lokið með sigri heimamanna í Kýpur.  Íslenska liðið færði sig framar á völlinn þegar leið á hálfleikinn til þess að freista þess að minnka muninn.  Við það fengu heimamenn nokkur færi eins og íslenska liðið en hvorugu liðinu tókst að bæta við marki.  Lokatölur því 2-0 fyrir Kýpur.

Riðillinn

Hópurinn