• mið. 05. mar. 2008
  • Landslið

Leikið gegn Póllandi kl. 13:15 í dag

Byrjunarlið Íslands gegn Kína á Algarve Cup árið 2007
Algarve_2007_Kina_byrjunarlidid

Íslenska kvennalandsliðið leikur sinn fyrsta leik á Algarve Cup í dag og eru Póverjar mótherjarnir.  Leikurinn hefst kl. 13:15 og verður fylgst með gangi mála hér á síðunni.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í leiknum.

Byrjunarliðið (4-3-3):

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir

Hægri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir

Vinstri bakvörður: Ásta Árnadóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir

Varnartengiliðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir

Sóknartengiliður: Guðný Björk Óðinsdóttir

Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir

Vinstri kantur: Greta Mjöll Samúelsdóttir

Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir

Ísland og Pólland hafa mæst tvisvar sinnum áður í A-landsleik kvenna og voru báðir leikirnir liður í undankeppni fyrir EM 2005.  Fyrir leikurinn fór fram á Laugardalsvelli 13. september árið 2003.  Þar fóru íslensku stelpurnar á kostum og sigruðu með tíu mörkum gegn engu.  Aðeins tveimur vikum síðar mættust liðin að nýju í Póllandi og var sá leikur öllu jafnari.  Íslenska liðið vann þann leik með þremur mörkum gegn tveimur.  Pólska liðið var í 27. sæti á síðasta styrkleikalista FIFA en það íslenska er í því 21. sæti.

Ísland - Pólland

Leikurinn er hafinn á Algarve og sú nýjung er í þessum leik að 6 dómarar starfa við leikinn.  Dómari leiksins kemur frá Bólivíu og aðstoðardómararnir frá Paraguay og Uruguay.  Fjórði dómarinn er einnig frá Uruguay en aukaaðstoðardómararnir koma frá Noregi og Finnlandi.  Þeir staðsetja sig um 10 metra frá hornfána fyrir aftan endalínuna.

Íslenska liðið hefur verið sterkara fyrstu 30 mínúturnar en staðan er ennþá 0-0.

Margrét Lára Viðarsdóttir fékk gott færi strax á þriðju mínútu en markvörður Pólverja var á undan henni í boltann.  Pólska liðið átti nokkrar skyndisóknir án þess að skapa sér góð færi.

Á 26. mínútu á Katrín Jónsdóttir skalla rétt yfir mark Pólverja og stuttu síðar átti Dóra Stefánsdóttir gott skot sem markvörðurinn varði vel.

Guðný Óðinsdóttir komst svo tvisvar sinnum ein innfyrir með mínútmillibili en tókst ekki að koma boltanum framhjá góðum pólskum markverði.

Staðan 0-0 í hálfleik og íslenska liðið hefur sótt mun meira án þess að ná að brjóta ísinn.

Tvær breytingar voru gerðar í hálfleik.  Þær Rakel Hönnudóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir komu inn í stað Gretu Mjallar Samúelsdóttur og Dóru Maríu Lárusdóttur.

1-0  Dóra Stefánsdóttir hefur komið íslenska liðinu yfir með góðu skoti.  Hún fékk sendingu frá Margréti Láru Viðarsdóttur, skaut fyrir utan vítateig og knötturinn söng í netinu.  Markið kom á 58. mínútu og hefur íslenska liðið verið sterkari aðilinn í síðari hálfleik eins og þeim fyrri.

2-0  Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði annað mark Íslendinga eftir að hafa komist ein innfyrir vörnina.  Markið kom á 81. mínútu og var íslenska liðið búið að sækja mjög stíft þessar síðustu mínútur.  Margrét Lára átti stangarskot á 79. mínútu og boltinn hrökk til Rakelar Hönnudóttur sem skaut líka í stöngina.  Mínútu síðar komst Sara Björk ein innfyrir en enn einu sinni varð markvörður Pólverja.

Leiknum er lokið á Algarve og nokkuð öruggur sigur íslenska liðsins staðreynd.  Íslenska liðið sótti nokkuð á lokakaflanum án þess þó að fá mörg dauðafæri.  Margrét Lára átti gott skot úr aukaspyrnu á síðustu mínútu leiksins en boltinn fór naumlega framhjá.

Næsti leikur liðsins verður gegn Írlandi á föstudaginn og hefst sá leikur kl. 16:30. 

Leikskýrsla