• fim. 04. sep. 2008
  • Landslið

Áfram Ísland klúbburinn með upphitun í Noregi

Við erum öll í íslenska landsliðinu!
ahorfendur-10

Áfram Ísland klúbburinn, í samstarfi við Íslendingafélagið í Osló og Icelandair verða með upphitun laugardaginn 6. september næstkomandi  fyrir leik Norðmanna  og Íslendinga sem hefst kl 19.00. Upphitunin verður í miðbæ Oslo á staðnum 3brodre og hefst um klukkan 13.  Þaðan er stutt í neðanjarðarlest nr. 4 Ringen sem fer á Ullevaal völlinn.

Boðið verður upp á andlitsmálningu, íslenska stuðtónlist, íslensku stuðningsmannalögin verða æfð og hægt verður að kaupa áfram Ísland varning til að dressa sig upp fyrir leikinn.  Ljóst er að fjöldi Íslendinga verða á vellinum og því má búast við gríðarlegri stemningu.

Mætum öll í upphitunina og skemmtum okkur saman.... áfram Ísland, áfram Ísland.....