• mið. 29. okt. 2008
  • Landslið

Byrjunarlið Íslands gegn Írum

Kvennalandslidid_2008
Kvennalandslidid_2008

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Írum á morgun. Leikurinn hefst kl. 18:10 á Laugardalsvelli og eru allir er vettlingi geta valdið hvattir til þess að mæta á þennan stórleik.

Byrjunarliðið (4-5-1):

Markvörður: María Björg Ágústsdóttir

Hægri bakvörður: Ásta Árnadóttir

Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir

Tengiliðir: Dóra Stefánsdóttir og Edda Garðarsdóttir

Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir

Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir

Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir

Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir

Miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 12:00 en hægt er einnig að kaupa miða á netinu á www.midi.is fram að leik.

ÁFRAM ÍSLAND!