• fim. 30. okt. 2008
  • Landslið

Andlitsmálun fyrir leik gegn Írlandi

Jóhanna Margrét nýtti sér andlitsmálninguna í síðasta leik
Johanna_Margret

Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir viðureign Íslands og Írlands í dag á Laugardalsvelli.  Leikurinn hefst kl. 18:10 og er um að gera að mæta tímanlega og láta mála íslenska fánann á kinnina og ennið, jafnvel að láta mála allt andlitið til að vera sem flottastur!

Vallargestir eru hvattir til að mæta tímanlega til að forðast biðraðir og tafir.  Mætum því snemma, verum í hlýjum fötum og málum okkur blá, rauð og hvít!