• þri. 17. mar. 2009
  • Landslið

Miðar á Ísland - Færeyjar fyrir handhafa A-passa

Við erum öll í íslenska landsliðinu!
ahorfendur-11

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Færeyjar afhenta fimmtudaginn 19. mars frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.  Það eru A-passar frá árinu 2008 sem gilda. 

Möguleiki er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma.  Athugið að mjög takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik.

Leikurinn við Færeyjar fer fram í Kórnum, sunnudaginn 22. mars og hefst kl. 14:00.

Vegna framkvæmda við aðalinngang sambandsins þarf að ganga inn um norðurendann (vinstra megin við aðalinngang, inngangur merktur N) og fara þar upp á 2. hæð.