• fös. 14. ágú. 2009
  • Landslið

Kveðjum stelpurnar okkar með stæl!

Við erum öll í íslenska landsliðinu!
ahorfendur-10

A-landslið kvenna mætir Serbíu í undankeppni HM 2011 á laugardalsvelli á laugardag kl. 14:00.  Þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppninni og jafnframt lokaleikur liðsins fyrir úrslitakeppni EM í Finnlandi.  Miðasala er í fullum gangi á midi.is, og miðasalan við Laugardalsvöll á leikdag opnar kl. 11:00. 

Fólk er hvatt til að kaupa sér miða tímanlega, annað hvort á vefnum eða við leikvanginn, til að forðast biðraðir og örtröð þegar fólk flykkist á völlinn rétt fyrir leik, eins og oft kemur fyrir. 

Miðaverð fyrir 17 ára og eldri er kr. 1.000, en frítt er fyrir 16 ára og yngri.

Handhafar A-aðgönguskírteina frá KSÍ þurfa ekki miða á leikinn, heldur sýna þeir bara skírteinið sitt við innganginn.  Börn 16 ára og yngri þurfa ekki miða á leikinn, þau geta farið beint inn án þess að koma við í miðasölunni.

Fjölmennum á leikinn og gefum stelpurnum okkar þá kveðjujöf sem þær eiga skilið - þúsundir Íslendinga og brjálaða stemmningu á Laugardalsvelli!