• sun. 23. ágú. 2009
  • Landslið

Byrjunarlið Íslands gegn Frökkum

EM stelpurnar okkar
lidsmynd-emstelpurnar-JGK-agust

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari stelpnanna okkar, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Frökkum.  Þetta er fyrsti leikur íslensks A-landsliðs í úrslitakeppni stórmóts.  Leikkerfið er hefðbundið – Fjögurra manna varnarlína, tveir varnartengiliðir, einn sóknartengiliður, marksæknir kantmenn og einn miðframherji.

Markvörður

  • Þóra B. Helgadóttir

Hægri bakvörður

  • Erna B. Sigurðardóttir

Vinstri bakvörður

  • Ólína G. Viðarsdóttir

Miðverðir

  • Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
  • Katrín Jónsdóttir, fyrirliði

Varnartengiliðir

  • Edda Garðarsdóttir
  • Katrín Ómarsdóttir

Sóknartengiliður

  • Sara Björk Gunnarsdóttir

Hægri kantmaður

  • Dóra María Lárusdóttir

Vinstri kantmaður

  • Hólmfríður Magnúsdóttir

Framherji

  • Margrét Lára Viðarsdóttir

Leikurinn á mánudag hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og fer fram á Ratina leikvanginum í Tampere.  Þjóðin fylgist spennt með, bæði við sjónvarpsskjáinn heima á Íslandi og á vellinum í Tampere.   Búist er við tæplega 7.000 áhorfendum á leikinn.  Stelpurnar munu gera allt sem þær geta til að láta draumana rætast.  Áfram Ísland, alltaf, alls staðar!