• fim. 14. feb. 2013
  • Landslið

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið niður um níu sæti

Coca-Cola styrkleikalisti FIFA fyrir karlalandslið
fifaworldranking2008

Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun, fellur íslenska karlalandsliðið niður um níu sæti frá síðasta lista og sitja nú í 98. sæti.  Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans og Þjóðverjar koma þar á eftir.

Af andstæðingum Íslands í undankeppni HM er það að frétta að Sviss er í 14. sæti listans, Noregur í 27. sæti og Slóvenía í 54. sæti.  Albanía er í 71. sæti og Kýpur í 135. sæti styrkleikalista FIFA.