• fim. 21. feb. 2013
  • Landslið

U19 karla - Leikið við Dani í dag kl. 13:30

U19---Byrjunarlid-gegn-Donum-19.-feb
U19---Byrjunarlid-gegn-Donum-19.-feb

Strákarnir í U19 leika í dag annan vináttulandsleikinn við Dani á þremur dögum en fyrri leik liðanna lauk með 1 - 1 jafntefli á þriðjudaginn.  Kristinn R. Jónsson, landliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið en leikið verður í Farum og hefst leikurinn kl. 13:30 að íslenskum tíma.

Byrjunarliðið:

Markvörður: Rúnar Alex Rúnarsson

Hægri bakvörður: Adam Örn Arnarsson

Vinstri bakvörður: Ósvald Jarl Traustason

Miðverðir: Orri Sigurður Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson

Tengiliðir: Emil Ásmundsson og Oliver Sigurjónsson

Hægri kantur: Ævar Ingi Jóhannesson

Vinstri kantur:  Atli Fannar Jónsson

Sóknartengiliður: Stefán Þór Pálsson

Framherji: Kristján Flóki Finnbogason