• þri. 05. mar. 2013
  • Landslið

Skin og skúrir á Algarve

Þjálfarar liðanna í B riðli, frá vinstri Bandaríkin, Ísland, Svíþjóð og aðstoðarþjálfari Kína
Bladamannafundur-Algarve-1

A landslið kvenna kom til Algarve í gærkvöldi en á morgun fer fram fyrsti leikur Íslands á mótinu þegar leikið verður gegn efsta liðinu á styrkleikalista FIFA, Bandaríkjunum.  Leikurinn hefst kl. 14.00 að íslenskum tíma.

Liðið æfði í morgun og tekur svo aðra æfingu síðar í dag.  Aðstæður á Algarve eru að venju góðar en þó hafa skipst á skin og skúrir í veðurfarinu, sólarglennum fléttað saman við regnskúrir.  Ástandið á hópnum er þó gott og tóku allir leikmenn þátt á æfingunni í morgun.

Þá var haldinn blaðamannafundur með þjálfurum liðanna í dag þar sem þeir sátu fyrir svörum.  Leikið er í þremur riðlum og voru því þjálfarnir 12 sem sátu fyrir svörum í dag.

Sýnt verður frá nokkrum leikjum mótsins á sjónvarpsstöðinni Eurosport en margir landsmanna hafa aðgang að henni.  Þ.m.t. verður leikur Íslands og Svíþjóðar sýndur þar föstudaginn 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, en leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma.  Allir leikir Bandaríkjanna verða einnig sýndir þar í landi en óvíst hvort útsendingar frá þeim náist hér á landi.

Leikurinn við Bandaríkin verður ekki eini kvennalandsleikur Íslands á morgun því þá hefja stelpurnar í U19 líka leik en þær taka þátt á æfingamóti á La Manga.  Andstæðingar morgundagsins verða Hollendingar.

Fylgst verður með báðum þessum leikjum á Facebooksíðu KSÍ.

Þjálfarar liðanna í B riðli sitja fyrir svörum

Þjálfarar liðanna í A riðli sitja fyrir svörum