• mán. 03. jún. 2013
  • Landslið

Ísland – Slóvenía - Miðar fyrir handhafa A-passa

Flottir stuðningsmenn málaðir í fánalitunum!
studningsmenn-JGO_0385

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland – Slóvenía  í undankeppni HM 2014 afhenta miðvikudaginn 5. júní frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Möguleiki er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik.

Leikurinn við Slóveníu  fer fram á Laugardalsvelli, föstudaginn 7. júní  og hefst kl. 19:00.