• fim. 10. okt. 2013
  • Landslið

U19 karla - Leikið gegn Frökkum í dag

U19 landslið karla
ksi-u19karla

Strákarnir í U19 hefja í dag leik í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Belgíu.  Mótherjar dagsins eru Frakkar og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslendinga en einnig leika í riðlinum Belgar og Norður Írar.

Byrjunarliðið:

Markvörður: Fannar Hafsteinsson

Hægri bakvörður: Adam Örn Arnarsson

Vinstri bakvörður: Daníel Leó Grétarsson

Miðverðir: Orri Sigurður Ómarsson og Hjörtur Hermannsson, fyrirliði

Tengiliðir: Oliver Sigurjónsson og Emil Ásmundsson

Hægri kantur: Daði Bergsson

Vinstri kantur: Ævar Ingi Jóhannesson

Sóknartengiliður: Stefán Þór Pálsson

Framherji: Kristján Flóki Fnnbogason

Minnt er á textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.