• þri. 29. okt. 2013
  • Landslið

A kvenna - Tvær æfingar í dag

Æfing A landsliðs kvenna í Serbíu
Mynd-fra-aefingu

Tvær æfingar voru á dagskránni í dag hjá kvennalandsliðinu sem þessa dagana er statt í Belgrad í Serbíu.  Framundan er mikilvægur leikur í undankeppni HM en leikið verður við heimastúlkur á fimmtudaginn.

Það er óhætt að seggja að æfingaaðstaðan hér í Belgrad sé frábær.  Veðrið hefur og leikið við hópinn og æfingavöllurinn í frábæru ásigkomulagi.  Hitinn í dag var um 25 stig og heiðskírt og er búist við því sama á morgun.  Spáin á leikdag er öðruvísi en þá er búist við að skýjuðu veðurfari og um 15 stiga hita.  Leikuirnn hefst kl. 14:00 að staðartíma á fimmtudaginn eða kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Allir leikmenn eru heilir og tóku fullan þátt á æfingunum í dag,  Á morgun verður æft á keppnisvellinum, FK Obilic Stadium, en hann er í um hálftíma akstursfjarlægð frá hóteli hópsins.  Heimamenn segja keppnisvöllinn ekki í jafngóðu ásigkomulagi og æfingavöllinn og verður því fróðlegt fyrir hópinn að æfa á vellinum á morgun.

Æfing A landsliðs kvenna í Serbíu