• þri. 13. okt. 2015
  • Landslið

Tékkland vann A-riðil, Ísland áfram ásamt Tyrklandi

Island---Tyrkland-EM-2015---0903

Mikill fögnuður braust út í leiks­lok á leik Tékklands og Íslands en og það var ljóst að Kasakst­an hefði unnið Lett­land. Þau úr­slit þýða að Tyrk­ir fara beint á EM, sem liðið með best­an ár­ang­ur í 3. sæti í undan­keppn­inni, þegar horft er til úr­slita í leikj­um fimm efstu liða hvers riðils. 

Íslend­ing­ar og Tékk­ar höfðu þegar tryggt sér far­seðil­inn, en Ísland endaði í 2. sæti og Tékk­land efst með sigri á Hollandi í Amster­dam. Það fara því þrjú lið beint á EM úr A-riðli en það eru Íslendingar, Tékkar og Tyrkir.

Lokastaðan í riðlinum varð þannig að Tékkar unnu riðilinn með 22 stig, svo kom Ísland með 20 stig, Tyrkir komust einnig áfram vegna góðs árangurs í 3. sæti en liðið fékk 18 stig í keppninni. Holland situr eftir með 13 stig en liðið tapaði 2-3 á heimavelli gegn Tékkum, 

Kasakstan gerði sér lítið fyrir og hoppaði upp fyrir Lettland en Kasakstan vann Letta 0-1 í Lettlandi og fær 5 stig eins og Lettar en sigurinn í kvöld setur Letta í botnsætið og Kasakstan enda í 5. sætinu.


Tyrkir fagna markinu sem tryggði liðinu sæti á EM í kvöld.