• fim. 15. okt. 2015
  • Landslið

Ísland í fjórða styrkleikaflokki fyrir EM 2016

UEFA EURO 2016
Logo2016_Prt_Full_OnWht

UEFA hefur gefið út styrkleikaflokkana fyrir úrslitakeppni EM karlalandsliða 2016.  Röðunin er þó ekki klár fyrir öll liðin, því bíða þarf eftir niðurstöðu úr umspilsleikjunum, sem fram fara í nóvember.  Það liggur þó ljóst fyrir að Ísland er í fjórða styrkleikaflokki ásamt Wales, Albaníu og Norður-Írlandi.


Dregið verður í umspilið næstkomandi sunnudag og þeir leikir fara síðan fram í nóvember.  Drátturinn fyrir úrslitakeppnina fer síðan fram í París 12. desember.