• þri. 21. ágú. 2018

Knattspyrnusambönd á Norðurlöndunum styðja framboð Aleksander Ceferin til annars kjörtímabils sem forseta UEFA

Fulltrúar knattspyrnusambanda Norðurlandanna sex hittust síðastliðna helgi í Helsinki í Finnlandi, en um var að ræða árlegan Norðurlandafund.

Á fundinum ákváðu knattspyrnusamböndin, samkvæmt tillögu formanna og í samráði við stjórnir þeirra, að styðja framboð Aleksander Ceferin til áframhaldandi setu sem forseti UEFA.

Stuðningsyfirlýsingar fyrir framboði Ceferin munu verða sendar UEFA af hverju knattspyrnusambandi fyrir sig.

Forsetakosningar UEFA fara fram á 43. þingi sambandsins í Róm, Ítalíu, þann 7. febrúar 2019.