• fös. 11. ágú. 2023

Vegna atviks í leik Fjölnis og Álftaness

KSÍ vill þakka því heilbrigðisstarfsfólki, og öðrum, sem hlúðu að leikmanni Álftaness í gær í leik Álftaness og Fjölnis í 2. deild kvenna.

Þá hafa foreldrar leikmannsins einnig óskað eftir að koma á framfæri þökkum til viðbragðsaðila, Fjölnis og öðrum þeim sem sýndu stuðning.

KSÍ sendir leikmanninum og fjölskyldu hennar hlýjar kveðjur.